Leikskólinn Flúðir

v/ Þingvallastræti

 Sími: 462-6602

veffang: fludir@akureyri.is

 

 

 

Starfsfólk
Foreldrahandbók
Dagatal mánaðarins
Skóladagatal 2011-2012
Umhverfissíða
Bernskulæsi
SMT-Skólafærni
Matseðillinn
Myndir
Sönglögin okkar
Foreldrafélagið
Ýmis eyðublöð
Tenglar
English

 

 

 

Sumarlokun Flúða 2012

9. júlí - 3.ágúst

 

Sumarlokun Flúða 2013

24. júní - 19. júlí

 

Sumarlokun Flúða 2014

7. júlí - 1.ágúst

 

 

Lokanir veturinn 2012

 

5. mars lokað vegna skipulagsdags starfsfólks

 

20. apríl lokað vegna námskeiðsdags starfsfólks

 

4. maí lokað 12.15 v/starfsmannafundar

 

 

 

Í dag var fyrsta afmæliskaka ársins skreytt inn á sal. Afmælisbörn janúarmánaðar komu saman inn á sal og skreyttu kökurnar en myndir má sjá hér.

 

 

Í dag, 20. janúar, í tilefni af komu þorrans var haldinn Þorrasöngsalur í dag inn á sal. Börnin höfðu útbúið sér flottar kórónur í tilefni dagsins og voru sungin ýmis vetrar- og þorratengd lög. Myndir má sjá hér.

 

 

Sumarlokun Flúða 2012

 9.júlí - 3.ágúst

(opnum aftur 7. ágúst)

 

 

Nýr starfsmaður hefur hafið störf hjá okkur en það er hún Eva Bryndís Bernharðsdóttir og verður hún í afleysingum.  Einnig er byrjuð hjá hún Valdís Jónsdóttir en hún er í vinnustaðanámi frá VMA.  Valdís vinnur á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl:8-12 og verður til að byrja með inni á Putalandi.

 

 

Til foreldra barna í leikskólum Akureyrarbæjar.

 

Á hverju ári berast skóladeild Akureyrarbæjar umsóknir þar sem foreldrar óska eftir að flytja börn sín milli leikskóla innan bæjarins. Að því tilefni vill skóladeild benda á eftirfarandi:
Aðalinnritun í leikskólana fer fram í apríl / maí hvert ár. Því er mikilvægt að allar beiðnir um flutning hafi borist skóladeild Akureyrar fyrir 30. mars ár hvert. Ef umsóknir berast eftir þann tíma er ekki hægt að tryggja að flutningur geti átt sér stað fyrir væntanlegt skólaár.
 

 

Í dag föstudaginn 13. janúar var söngsalur þar sem sungin voru ýmis vetrartengd lög.

Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í salnum.

 


Skólanefnd hefur samþykkt að sumarlokun leikskóla 2012 verði í tveimur tímabilum. Fyrra tímabilið verður frá 25. júní til 20. júlí og seinna tímabilið verður frá 9. júlí til 3. ágúst. Skólanefnd samþykkir að þetta fyrirkomulag verði sett upp til þriggja ára þar sem leikskólum er raðað niður á tímabilin. Þessi niðurstaða skólanefndar tekur mið af umsögnum sem bárust frá starfsmönnum leikskóla og foreldraráðum auk þess sem horft var til foreldrakönnunar frá vori 2011.

 

 

 

18. janúar hefst danskennsla hér í leikskólanum.  Þá mun Elín danskennari koma hingað í leikskólann og vera með danskennslu fyrir öll börn í leikskólanum.

 

Um áramótin kom til framkvæmda breyting á skólamatseðlum leik- og grunnskóla bæjarins. Um tilraunaverkefni er að ræða þar sem ákveðið var að hafa sama matseðil í öllum skólunum. Meginmarkmiðið með þessari breytingu er að tryggja að öllum skólabörnum standi til boða hollur og næringarríkur hádegisverður.

Matseðillinn nær yfir sjö vikur í senn og er hægt að sjá hann hér á vinstra megin á síðunni undir tenglinum matseðill. Hægt er að skoða matseðilinn fyrir hvern dag, sjá innihaldslýsingu máltíða og þegar fram líða stundir verður hægt að sjá útreiknað næringargildi matarins. Matseðlarnir og innihaldslýsingarnar hafa verið unnar af sérfræðingum.

 

Í gær, fimmtudaginn 24. nóvember, var afmæliskaka mánaðarins skreytt inn á sal. Myndir má sjá hér.

 

 

Þriðjudaginn 15. nóvember var umhverfisdagur hér í leikskólanum og hittumst börn af öllum deildum inn á sal og unnu úr verðlausu efni.  Myndir má sjá hér.

 

 

 

Nú í vetur er að fara af stað þróunarverkefni sem heitir leikum og lærum saman.  Verkefnið hefur það að markmiði að efla samstarf á milli Lundarskóla, Flúða, Pálmholts og Lundarsels til að auðvelda elstu börnum leikskólans að hefja grunnskólagöngu.  Þróunarverkefnið hefur hlotið styrk úr sprotasjóði sem er þróunarsjóður leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hulduland
Undraland
Putaland

 

 

Samstarf leik- og grunnskóla

Lundarskóli, Lundarsel, Flúðir og Pálmholt

 

Leikskólabæklingur

 

Vinnureglur v/óveðurs

 

 

 

 

Við tökum þátt í Comeniusar-

verkefni á vegum ESB

 

Flúðir er grænfánaskóli

 

Við notum tákn með tali

 

 

 

 

Leikskólastjóri:

Sigríður Ósk Jónasdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri:

 Soffía Katrín Sigurðardóttir

 

 

Síðan var síðast uppfærð þann

27.01.2012